Þjónusta
Við hjá Drenlögnum ehf sérhæfum okkur í nýlagningu drenlagna og fóðrun/endurnýjun skólplagna. Við tökum líka að okkur jarðvinnu, kjarnaborun, steypusögun og vetrarþjónustu.
Drenlagnir
Drenlögn, sem oft er kölluð jarðvatnslögn eða regnvatnslögn, er ætlað það hlutverk að beina vatni frá útveggjum hússins.
Helsta orsök raka í veggjum og gólfum kjallara eða jarðhæðar getur verið biluð drenlögn eða að engin drenlögn sé við húsið. Við gömul hús sem byggð voru árið 1960 eða fyrr er líklegt að engin drenlögn sé til staðar.
Rúmlega 70% af verkinu er jarðvinna, og hana vinnum við með okkar eigin vélum.

Fóðrun og endurnýjun skólplagna
Skólplagnir eldast, springa og stíflast með árunum. Við metum ástand lagnarinnar og fóðrum hana eða endurnýjum, eftir því hvað hentar.
Með fóðrun er ný lögn mynduð innan í þeirri gömlu. Þá þarf oft hvorki að brjóta upp gólf né grafa upp garðinn.

Tækjakostur
Við hjá Drenlögnum ehf búum yfir breiðu úrvali af tækjum, bæði stórum sem smáum vinnuvélum. Smágröfur komast að húsum þar sem lítið pláss er, og stærri vélar taka stærri jarðvinnuverk.

Önnur þjónusta

Gröfuþjónusta
Tökum að okkur alla jarðvinnu.
- Gröfur af öllum stærðum og gerðum.

Kjarnaborun
Kjarnaborun fyrir lögnum, loftun og rafmagni.
- Gætum sérstaklega að hreinlæti.

Steypusögun
Sögum fyrir lögnum, gluggum og hurðum.
- Steypusagir af öllum gerðum.
VetrarþjónustaSnjómokstur
Tryggjum greiðan aðgang á bílaplönum allan veturinn.
- Gerðu verðsamanburð.
- Gerum þjónustusamning.
VetrarþjónustaHálkuvarnir
Söltun á bílaplönum. Öryggið fyrst – við sjáum um hálkuvarnirnar.
- Gerðu verðsamanburð.
- Gerum þjónustusamning.
